Skoða framboð
Eftir að hafa valið hvort þú sért FÍ félagi eða ekki þá kannaðu framboðið, en það sést undir dagsetningum.
Veldu dagsetningar
Smelltu á komudag og síðan á brottfarardag fyrir skálagistingu. Í ferðum er bara smellt á brottfarardag.
Stilltu fjölda gesta
Tilgreindu fjölda í hverjum aldursflokki með því að smella á „+“ eða „–“.
Staðfesta bókun
Smelltu á „Bóka“ til að bóka valið. Bókunin bætist þá í körfuna og færir þig yfir á greiðslusíðuna.
Klára greiðslu
Athugaðu að ógreiddar bókanir eru fráteknar í 15 mínútur. Að þessum tíma loknum þá losnar um það sem var bókað og aðrir notendur geta mögulega bókað það sem var áður frátekið.
Upplýsingar
Þórsmörk, Langidalur / Skáli
Svefnpláss
-Fullorðnir (18 ára og eldri): kr. 17.000
-Unglingar & börn (7-17 ára): kr. 8.500
-Börn (6 ára og yngri): Frítt
Aðstöðugjald: kr. 700
Ef aðstaða við skála FÍ er nýtt, svo sem klósett, nestishús eða grill, án þess að gista, þarf að greiða aðstöðugjald. Aðstöðugjald er innifalið í gistigjaldi fyrir skála og tjöld. Aðrir gestir sem koma í heimsókn yfir daginn eða hluta úr degi og nýta sér aðstöðuna þurfa að greiða aðstöðugjald.
Þetta á ekki við um Landmannalaugar, þar sem aðstöðugjald er innifalið í bílastæðagjaldi sem Parka innheimtir yfir sumartímann.
Sturtugjald: kr. 1.100
Sturtugjöld eru ekki innifalin í gistingu né aðstöðugjaldi
FÍ félagar
Félagsmenn í FÍ fá afslátt sem gildir einnig fyrir maka og börn að 18 ára aldri í fylgd félagsmanns.
Skilmálar
Afbókun 56 dögum eða meira fyrir dagsetningu: 75% endurgreiðsla gistigjalds.
Afbókun 55–21 dögum fyrir dagsetningu: 50% endurgreiðsla gistigjalds.
Afbókun 20–0 dögum fyrir dagsetningu: Engin endurgreiðsla gistigjalds.
Ekki er endurgreitt vegna veðurs eða annarra náttúruafla, seinkunar eða ef viðkomandi mætir ekki á staðinn.
Pakkaferðir verða að afbókast í heild. Ekki hægt að afbóka og endurgreiða einstaka skálagistingu sem er inní pakkaferð.