Skoða framboð Dagar eru litaðir eftir hvað er mikið af plássum eftir. Grænt þýðir að það eru meira en 10 laus pláss, gult 6-10, appelsínugult 1-5 og rautt er fullbókað. Ferðir: Þú þarft bara að finna einn lausann dag til að bóka ferð og hefja hana á þeim degi.
Veldu dagsetningar
Smelltu á komudag og síðan á brottfarardag fyrir skálagistingu og tjaldsvæði. Í ferðum smelltu bara á brottfarardag.
Stilltu fjölda gesta
Tilgreindu fjölda í hverjum aldursflokki með því að smella á „+“ eða „–“.
Staðfesta bókun
Smelltu á „Bóka“ til að bóka valið. Bókunin bætist þá í körfuna og færir þig yfir á greiðslusíðuna.
Klára greiðslu
Athugaðu að ógreiddar bókanir eru fráteknar í 15 mínútur. Að þessum tíma loknum þá losnar um það sem var bókað og aðrir notendur geta mögulega bókað það sem var áður frátekið.
Upplýsingar
Laugavegurinn I / Ferð
Dagur 1: Ekið í Landmannalaugar. Þaðan er gengið undir Brennisteinsöldu um Laugahraun og Stórahver í Hrafntinnusker þar sem verður gist. Ganga: 12 km. Hækkun: 400 m.
Dagur 2: Gengið um litrík gil með hverum og jarðhitavirkni suður úr öskju Torfajökuls og svo niður Jökultungur með slæðufossum í Álftavatn. Ganga: 12 km. Lækkun: um 490 m.
Dagur 3: Gengið úr Álftavatni um Hvanngil. Bratthálskvísl og Bláfjallakvísl vaðnar og arkað yfir sanda undir Hattfelli, Tudda og Tvíböku á leið í skálana í Botnum í Emstrum. Hið stórbrotna Markarfljótsgljúfur skoðað í síðdegisgöngu. Ganga: 16 km og lítil hækkun.
Dagur 4: Þrammað áfram um Fauskatorfur, Almenninga og Kápu uns Þröngá er vaðin. Þaðan um ilmandi birkiskóga Þórsmerkur í Skagfjörðsskála í Langadal. Ganga: 16 km. Uppsöfnuð hækkun: 200 m.
Dagur 5: Morgunganga á Valahnúk fyrir þá sem vilja áður en haldið er af stað til Reykjavíkur rétt fyrir hádegi.
Skilmálar
Afbókun 56 dögum eða meira fyrir dagsetningu: 75% endurgreiðsla gistigjalds.
Afbókun 55–21 dögum fyrir dagsetningu: 50% endurgreiðsla gistigjalds.
Afbókun 20–0 dögum fyrir dagsetningu: Engin endurgreiðsla gistigjalds.
Ekki er endurgreitt vegna veðurs eða annarra náttúruafla, seinkunar eða ef viðkomandi mætir ekki á staðinn.
Pakkaferðir verða að afbókast í heild. Ekki hægt að afbóka og endurgreiða einstaka skálagistingu/tjaldgistingu sem er inní pakkaferð.